KYNFRÆÐSLA
Vinátta, ást og rómantísk sambönd
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Vinir geta haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á hvorn annan.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
borið saman hvernig áhrif vinir hafa á hvorn annan, bæði jákvæð og/eða neikvæð áhrif.
-
greint frá því hvernig vinir geti haft neikvæð eða jákvæð áhrif á þeirra eigin hegðun.
-
sýnt dæmi um hvernig megi forðast það að verða fyrir neikvæðum áhrifum frá vini.
Það eru til margs konar sambönd.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
borið kennsl á mismunandi gerðir af samböndum.
-
gert greinarmun á þeim tilfinningum sem tengjast ást, vináttu, hrifningu eða kynferðislegum áhuga.
-
rætt við aðra um hvernig náin sambönd geta stundum orðið kynferðisleg.
-
sýnt dæmi um hvernig megi vinna með/úr eigin tilfinningum sem tengjast mismunandi samböndum.
Rómantísk sambönd geta orðið fyrir miklum áhrifum af ójafnræði og valdaójafnvægi (t.d. með tilliti til kyns, aldurs, fjárhagslegri, félagslegri eða heilsufarslegri stöðu).
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
greint frá því hvernig ójafnræði og valdaójafnvægi geti haft neikvæð áhrif á rómantísk sambönd.
-
sagt frá því hvernig steríótýpur varðandi kyn geti haft áhrif á rómantísk sambönd.
-
þekkt einkenni þess hvernig ójafnræði og valdaójafnvægi geti verið skaðlegt samböndum.
-
með horft á sambönd með gagnrýnum augum og skoðað hvernig jafnræði og valdajafnvægi sé innan sambanda.