KYNFRÆÐSLA
Jafnrétti kynjanna, staðalímyndir og fordómar
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Kynjamisrétti og valdaójafnvægi á sér stað innan fjölskyldna, vina, sambanda, nærsamfélags og menningarheims.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
skilgreint hvað felist í kynjamisrétti.
-
lýst því hvernig kynjamisrétti geti tengst mismunandi valdadreifingu innan fjölskyldu, vina, samfélags og menningar.
-
rætt neikvæðar afleiðingar kynjamisréttis og valdaójafnvægis innan sambanda.
-
rætt eigin ábyrgð og ábyrgð annarra um að vinna gegn kynjamisrétti.
-
lýst leiðum að því að styðja við jafnrétti kynjanna innan heimilis, í skóla og samfélaginu í heild.
Staðalímyndir um kyn og kynhneigðir geta valdið misrétti og ójafnræði.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
skilgreint hvað felist í staðalímyndum er tengjast kynjum og kynjahlutverkum.
-
áttað sig á staðalímyndum kynjanna og þeim væntingum sem gerðar eru til kynjanna og hvernig það getur haft áhrif á líf einstaklinga (á bæði jákvæðan eða neikvæðan hátt).
-
greint frá því að mismunandi væntingar til einstaklinga sem byggjast á kyni hans geti leitt til misnotkunar eða ójafnréttis, sér í lagi ef einstaklingur víkur langt frá almennt samþykktum viðhorfum/staðalímyndum.
-
horft gagnrýnum augum á réttmæti kynjahlutverka og sýnt fram á leiðir til að storkað viðhorfum og hefðum sem stuðla að misrétti og eru skaðleg.
Einnig er hægt að skoða barnaþætti eða teiknimyndir og spá í kynin og hvernig þau birtast. Til að mynda má spyrja; "Af hverju eru Tommi og Jenni strákar, gætu þeir verið stelpur?". Hægt er að skoða leikföng eða liti, er eitthvað sem er bara fyrir stráka eða stelpur? Skoða hvernig og hvaða kynjahlutverk birtast í kringum þau, hver lagar bílinn, slær grasið, eldar matinn eða ryksugar?
Fá börn til að ræða um efnið, færa rök fyrir sínum skoðunum og jafnvel búa til sögur út frá hefðbundnum ævintýrum en snúa kynhlutverkunum við.