top of page
Kynsjúkdómar.png

Kynsjúkdómar
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin

Einstaklingar geta fengið kynsjúkdóma eftir að hafa stundað kynlíf með einstaklingi sem er smitaður af kynsjúkdómi.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • tilgreint algengustu kynsjúkdómana (t.d. HIV, HPV veiran, herpes, klamydía og lekandi).

  • lýst því að HIV smitast ekki með daglegri snertingu (t.d. handabandi, faðmlögum eða drekka úr sama glasi).

Það eru leiðir sem fólk getur farið til að minnka líkurnar á að fá kynsjúkdóm.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • lýst þeim leiðum sem hægt er að fara til minnka líkurnar á því að smitast eða smita aðra af kynsjúkdómi (t.d. smokkurinn eða töfrateppið og PREP lyf til að sporna við HIV).

  • tilgreint hvernig rétt notkun á smokkinum er.

  • sagt frá því hvenær HPV bólusetningin er gefin og hver tilgangur hennar sé.

  • leikið eftir eða sýnt fram á samskipti, samræðu og neitunarhæfni þegar einstaklingur verður fyrir óvelkomnum þrýstingi til kynferðislegra athafna eða þrýstingi til að sleppa kynsjúkdóma- og getnaðarvörnum.

Sumir kynsjúkdómar, eins og HIV/AIDS, geta haft áhrif á fjölskyldur (samsetningu þeirra, hlutverk og ábyrgð)

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • greint frá því að kynsjúkdómar, eins og HIV eða herpes, er ekki hindrun þegar kemur að samböndum, fjölskyldu og kynlífi þar sem að einstaklingar með mismunandi sjúkdóms stöðu (smitaðir og ósmitaðir) geta búið saman, verið í nánu sambandi og eignast börn sem eru ósmituð.

  • sagt frá þeim áhrifum sem sjúkdómar á borð við HIV getur haft á fjölskyldur, samsetningu þeirra, hlutverk og ábyrgð.

Kynsjúkdómapróf er eina leiðin til að komast að því hvort einstaklingur sé með kynsjúkdóm. Til er meðferð við flestum kynsjúkdómum. 

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • sagt frá hvað felist í kynsjúkdómaprófum og helstu meðferðum sem til eru gegn þeim.

  • lýst því hvernig hægt sé að styðja einstakling sem vill fara í kynsjúkdómapróf.

  • greint frá mikilvægi þess að stuðla að öruggu og styðjandi umhverfi fyrir þá sem vilja fara í kynsjúkdómapróf.

  • sagt frá hvert sé hægt að leita til að fara í kynsjúkdómapróf.

bottom of page