top of page
KYNFRÆÐSLA
Kyn- og æxlunarfæri
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Á kynþroska og meðgöngu koma hormón mikið við sögu og stuðla að nauðsynlegum þáttum í ferlinu.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
útskýrt að kyn fósturs ákvarðast af kynlitningum, um leið og sáð- og eggfruma sameinast.
-
útskýrt hlutverk hormóna í tengslum við vöxt og þroska.
-
áttað sig á mikilvægi þess hlutverks sem hormón spila í tengslum við kynþroska og meðgöngu.
Allir menningarheimar hafa mismunandi skilning á kyni, kynvitund, kynfærum og æxlun og hvenær eðlilegt telst að verða kynferðislega virkur.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
gert greinarmun á líffræðilegum og félagslegum þáttum í tengslum við kyn, kynlíf og æxlun.
-
borið saman hvernig menningarleg og trúarleg viðhorf hafa áhrif hvernig samfélagið sér kyn, kynlíf og æxlun.
-
greint frá því að viðhorf einstaklinga, byggð á menningu, samfélagi, trú og persónulegum viðhorfum, geta verið breytileg.
-
sagt frá eigin viðhorfi til kynja, kynlífs og æxlunar.
bottom of page