KYNFRÆÐSLA
Kyn, kynhneigð og kynferðisleg tjáning
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Einstaklingar fæðast með getu til að njóta eigin kynhneigðar og kynhegðunar í gegnum lífið.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi :
-
skilji að kynhneigð felur í sér líkamlega og tilfinningalega aðlöðun gagnvart öðrum.
-
geti lýst því hvernig einstaklingar upplifa ánægju í gegnum líkamlega snertingu (t.d. kossa, snertingu, gælur og kynferðislega snertingu) í gegnum allt lífið.
-
átti sig á að kynhneigð er heilbrigður hluti af því að vera manneskja.
-
geti greint frá því að mismunun á grundvelli kynhneigðar er slæm og meiðandi og getur haft neikvæð áhrif á þá einstaklinga sem verða fyrir henni.
-
geti rætt við aðra og sýnt skilning á mismunandi kynferðislegum tilfinningum og talað um kynhneigð á viðeigandi máta.
Það er eðlilegt að vera forvitin/nn/ið um kynhneigð og mikilvægt að geta spurt fullorðinn einstakling, sem maður treystir, spurningar er varða efnið.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
geti greint frá því að það er eðlilegt að vera forvitinn og hafa spurningar um kynhneigðir.
-
geti nefnt fullorðinn einstakling sem hann treystir og nefnt dæmi um hvernig hægt sé að fara að því að spyrja um kynhneigð.