KYNFRÆÐSLA
Örugg notkun upplýsinga og samfélagsmiðla
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Internetið og samfélagsmiðlar krefjast ákveðinnar varúðar og nærgætni.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
lýst dæmum um kosti og mögulegar hættur internetsins og samfélagsmiðla.
-
greint frá mikilvægi þess að gæta varúðar þegar internetið eða samfélagsmiðlar eru notaðir.
-
sýnt dæmi þess hvaða upplýsingum er í lagi að deila með hverjum í gegnum internetið eða samfélagsmiðla.
Kynferðislegt myndefni má nálgast á auðveldan hátt í gegnum samfélagsmiðla og geta ýtt undir skaðlegar staðalímyndir fyrir kynin.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
skilgreint hvað felist í kynferðislegt myndefni, t.d. klámi, og hvað "sexting" (kynferðisleg skilaboð) feli í sér.
-
útskýrt að kynferðislegt myndefni sýni karla og konur á óraunverulegan kynferðislegan máta.
-
rætt og gagnrýnt hvernig kynferðislegt myndefni sýni menn og konur á villandi hátt.
-
rætt og sýnt fram á hvernig hægt sé að tala við einhvern fullorðinn sem maður treystir um kynferðislegt myndefni og kynferðisleg skilaboð.