KYNFRÆÐSLA
Skuldbinding og foreldrahlutverkið
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Barnagiftingar eru skaðlegar og gegn lögum í flestum löndum heimsins.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
sagt til um hvað felist í barnagiftingum (CEFM : Child, early and forced marriages).
-
sagt frá þeim neikvæðu afleiðingum sem CEFM hefur á barn, fjölskyldu þess og samfélag.
-
greint frá því að barnagiftingar séu skaðlegar.
Langtíma sambönd, hjónaband og foreldrahlutverkið eru margvísleg og eru mótuð af samfélagi, trú, menningu og lögum.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
listað upp þá meginþætti sem felast í langtímasamböndum, hjónabandi og foreldrahlutverkinu.
-
lýst því hvernig menning, trúarbrögð, samfélag og lög/reglugerðir hafa áhrif á langtíma sambönd, hjónabönd og foreldrahlutverkið.
-
greint frá því að allir einstaklingar hafi rétt á því að þeir sjálfir eigi að fá að ráða hverjum og hvenær þeir giftast.
-
rökrætt sína skoðun á langtíma samböndum, hjónabandi og foreldrahlutverkinu.
Menning og kynjahlutverk hafa áhrif á uppeldi.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
rætt við aðra hvernig menning og kynhlutverk hafa áhrif á uppeldi.
-
endurspeglað eigin gildi og skoðanir á því hvað felist í að vera gott foreldri.