KYNFRÆÐSLA
Venjur og áhrif jafningja á kynhegðun
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Ákvarðanir í kynlífi og kynhegðun einstaklings getur haft afleiðingar fyrir einstaklinginn sjálfan og aðra, þar á meðal félagslegar og heilsufarslegar afleiðingar.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
geti greint þær jákvæðu og neikvæðu afleiðingar sem ákvarðanir í kynlífi geta haft fyrir hann sjálfan og aðra.
-
lýst leiðum til að taka upplýsta ákvörðun í kynlífi, ákvarðanir sem gætu haft áhrif á kynheilbrigði einstaklings.
-
borið kennsl á þær áhættur sem geta skapast fyrir einstakling í tengslum við kynhegðun og ákvarðanir í kynlífi.
Það eru vissir þættir sem geta gert einstaklingi erfitt fyrir þegar ákvarðanir eru teknar í tengslum við kynlíf og kynhegðun.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
borið kennsl á þær margvíslegu tilfinningar sem geta haft áhrif á ákvarðanir.
-
lýst því hvernig áfengi og aðrir vímugjafar geta haft áhrif á ákvarðanir einstaklings og kynhegðun hans.
-
útskýrt hvernig fátækt, ójöfnuður (t.d. kynja og kynhneigðar) og ofbeldi geta haft áhrif á ákvarðanatökur og kynhegðun.
-
sýnt skilning á því að margir þættir hafa áhrif á ákvarðanir einstaklinga í kynlífi og kynhegðun þeirra, þættir sem maður hefur stjórn á og sömuleiðis þeir þættir sem maður hefur ekki stjórn á.
-
lýst leiðum sem hægt er að fara til að meta og hafa stjórn á tilfinningum sem geta haft áhrif á ákvarðanir í kynlífi og eigin kynhegðun.
Ákvarðanir í kynlífi og í tengslum við kynhegðun geta haft mögulegar lagalegar afleiðingar.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
greint frá þeim lögum sem snúa að því hvað ungmenni mega og mega ekki gera í tengslum við kynlíf og kynhegðun (t.d. lögaldur í tengslum við samræði, aðgangur að læknisþjónustu og getnaðarvörnum).
-
rætt og lýst mikilvægi þess að þekkja eigin réttindi þegar teknar eru ákvarðanir í tengslum við kynhegðun og kynlíf.