KYNFRÆÐSLA
Venjur og áhrif jafningja á kynhegðun
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Jafningjar og vinir geta haft áhrif á ákvarðanir og hegðun í tengslum við kynhegðun.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
lýst jákvæðum og neikvæðum áhrifum sem jafningjar og vinir geta haft á ákvarðanir okkar í tengslum við kynhegðun og kynheilbrigði.
-
greint frá því að vinir og jafningjar geta haft áhrif á hegðun og ákvarðanir einstaklinga í tengslum við kynþroska, kynvitund og kyntjáningu.
-
horft með gagnrýnum augum á þau áhrif sem vinir og jafningjar hafa á hann sjálfan.
Það eru leiðir sem hægt er að fara til að standast neikvæðan hópþrýsting og til að stuðla að jákvæðum jafningjaáhrifum í tengslum við kynhegðun.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
lýst mismunandi leiðum til að sporna gegn neikvæðum áhrifum frá vinum og jafningjum ásamt því hvernig megi stuðla að jákvæðum áhrifum í tengslum við kynhegðun.
-
gert grein fyrir mikilvægi þess að vinna gegn neikvæðum jafningjaáhrifum í tengslum við unglingsárin og kynhegðun.
-
leikið eftir/sagt frá leiðum sem hægt er að fara til að neita að gera eitthvað sem nemandi vill ekki gera.
-
leikið eftir/sagt frá leiðum sem hægt er að fara til að samþykkja og ýta undir jákvæð áhrif jafningja.