KYNFRÆÐSLA
Kynþroskinn
Markmiðin á bak við lykilmarkmiðin
Kynþroski er tími þar sem kynferðislegur þroski á sér stað sem leiðir til mikilla líkamlegra, tilfinningalegra, félagslegra og þroskalegra breytinga sem geta verið spennandi og kvíðvænlegar fyrir ungmenni.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
-
skilgreint þann mun sem er á milli kynþroskaskeiðs og fullorðinsára.
-
greint frá því að kynþroski á sér stað á mismunandi aldursskeiðum hjá mismunandi einstaklingum og hefur mismunandi áhrif á stúlkur og stráka.
-
lagt mat á og flokkað niður mismunandi breytingar sem eiga sér stað á kynþroskaskeiðinu (t.d. líkamlegar, tilfinningalegar, félagslegar og þroskabreytingar)
-
borið saman líkindi og breytileika milli drengja og stúlkna í tengslum við kynþroskaskeiðið.
-
áttað sig á að kynþroskinn reynis mis mikið á einstaklinga, fyrir suma er þetta sérstaklega erfiður tími. Sér í lagi þá einstaklinga sem eru ekki sískynja eða gagnkynhneigðir.
-
greint frá því að þær líkamlegu, tilfinningalegu, félagslegu og þroska breytingar eru eðlilegur og mikilvægur hluti kynþroskaskeiðsins.
-
rætt á gagnrýnin hátt að stríðni, skömm og fordómar sem byggist á kynþroskabreytingum eru meiðandi og geta haft langvarandi andlegar afleiðingar.